-
Fjör á fjöllum
Frábært tilboð fyrir starfsmannafélög og fyrirtækjahópa sem vilja efla liðsheildina og upplifa sannkallað Þórsmerkurævintýri. Við komuna í Húsadal er tekið á móti hópnum og þegar ... Lesa meira
-
Þórsmerkurævintýri
Taktu rútuna frá Reykjavík og gistu eina nótt í Eldfjallaskálunum í þórsmörk. Þaðan geturðu farið í farið í stuttar ferðir með leiðsögn, eða gengið um ... Lesa meira
Laugavegs maraþonið er nú haldið í 16. skipti. Þetta 55 km. langa Ultra-maraþon, byrjar í Landmannalaugum og endar við Eldfjallaskálana í Húsadal. Ef að þú ert einn af hlaupurunum, eða ef þú ætlar þér að mæta og hvetja hlauparana áfram, ættir þú að tryggja þér gistingu í Eldfjallaskálunum í tíma. Eftir hlaupið er svo hægt að hvíla lúin bein í Lava Spa-inu okkar. Ef þú ert ekki nú þegar búinn að skrá þig í hlaupið, má finna nánar upplýsingar Lesa meira….
Að komast í Húsadal
Kynnisferðir halda úti áætlunarferðum á milli Þórsmerkur og Reykjavíkur yfir sumartíman. Tvær ferðir eru í boði á degi hverjum, frá 5. júní til 31. ágúst. Frá 1. – 16. september, er ein ferð á dag. Ítarlegri upplýsingar má finna á heimasíðu kynnisferða, www.re.is.
Trex býður einnig upp á eina ferð á dag frá 15. júní til 20. ágúst. Rútan frá Trex stoppar í Langadal, en þaðan er um 25 mínútna gangur yfir að Eldfjallaskálunum í Húsadal. www.trex.is
Þórsmörk er í um 150 km fjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu. Til að komast í Húsadal er ekið frá Suðurlandsvegi upp jeppafæran vegarslóða merktan F249 í Þórsmörk. Vegurinn frá þjóðvegi 1 er jeppafær en fara þarf yfir nokkra læki á leiðinni og Krossá sem krefst þekkingar til að komast yfir en hún er eingöngu fær vönum bílstjórum á vel útbúnum jeppum.
Í vissum aðstæðum getur verið töluvert vatn í ánum. Við þau skilyrði mælum við ekki með að aðrir en reynslumiklir bílstjórar á vel útbúnum jeppum, eða til þess búnar rútur leggji í árnar. Ef að þú ert í einhverjum vafa, eða ef þú ert á ferðinni á milli 1. maí og 30. september og vantar aðstoð við að komast yfir árnar, vinsamlegast hafðu samband við okkur í síma 552 8300.
Tvær vinsælar gönguleiðir enda í Þórsmörk. Annars vegar leiðin um Fimmvörðuháls og hins vegar leiðin um Laugaveg. Fimmvörðuháls er á milli Eyjafjallajökuls og Mýrdalsjökuls en leiðin yfir hálsinn frá Skógum yfir í Þórsmörk er ein allra vinsælasta gönguleið landsins. Leiðin er um 22km löng og hækkunin nemur um 1.000m. Leiðin er sérstaklega fögur ef gengið er frá suðri til norðurs enda óvanalega mikið af fossum í Skógá og útsýn falleg niður í Þórsmörk þegar komið er yfir hálsinn. Jöklarnir ná saman á hálsinum svo gengið er í snjó á stuttum kafla. Leiðin yfir Fimmvörðuháls er fjölbreytt og skemmtileg en um leið krefjandi og getur verið varasöm því allra veðra er von á hálendinu í svo mikilli nálægð við jöklana. Tilvalið er að hefja ferðina við Skógarfoss og enda hana í heitu lauginni í Húsadal.
Laugavegur kallast gönguleiðin milli Landmannalauga og Þórsmerkur en þessi vinsæla gönguleið býður upp á allt það besta sem íslensk náttúra hefur upp á að bjóða. Landslagið er afar fallegt og fjölbreytt og hægt er ganga útfrá leiðinni á ýmsum stöðum og lengja ferðina eftir aðstæðum. Flestir ganga Laugaveginn frá norðri til suðurs á 4 – 5 dögum en aðrir hlaupa jafnvel leiðina á nokkrum klukkustundum. Flestir leggja þannig af stað frá Landmannalaugum og enda í Þórsmörk þar sem hægt er að gista og komast í heita laug, sturtur og gufubað í Húsadal. Á leið yfir Laugaveginn er hægt að gista í skálum eða á tjaldstæðum í Hrafntinnuskeri, Álftavatni, Hvanngili og Emstrum (Botnum), en allir þessir skálar eru í eigu Ferðafélags Íslands.
This post is also available in: English

English
Íslenska